06.08.2006

Sneeellld

Allir sem hingað koma eiga það skilið að fá að kíkja inná þessa frábæru síðu :D:D Klikkið HÉR!

24.07.2006

Bílprófið nálgast

Jahérna hér, ég er bara alveg að fara að fá bílprófið. Það eru aðeins 5 mánuðir og 5 dagar í það. Ekki slæmt það!

Allir eða næstum allir vorkenna mér svo fyrir að eiga afmæli svona seint, ég vorkenni mér ekki neitt. Málið er bara að ég átti að fæðast fyrsta janúar '90 en þá hefði ég fengið bílprófið samt sem áður þremur dögum seinna. Ég er mjög heppinn með árgang finnst mér, ef ég hefði ekki flýtt mér svona úr maganum á mömmu hefði ég sjálfsagt ekki komist svona heppilega í körfuboltaakademíuna en eina ástæðan fyrir því að ég komst inn var af því að ég er heimamaður eða bý á sama stað og hún er. Ég er alls ekki viss um að ég hefði komist inn hefði ég átt að fara núna. Því strákarnir eru svakalega góðir sem koma núna inn sem '90.

Þetta var það sem ég vildi deila með ykkur!



Spurning dagsins = Hvaða íslenska fyrirbæri var kallað Rikshaw?

Lag dagsins = The Cranberries - Zombie (það er einhversstaðar hérna, er ekki alveg viss hvar !?!?!?)

Ef þið viljið vista það, þá hægrismellið þið á músina og "save file as" eitthvað svoleiðis!



podcast


- arig

20.07.2006

Kominn aftur í þrítugasta sinn

Kallinn er kominn aftur, hann veit því miður ekki hvað hann verður hér lengi. Síðan pennar.tk er aftur niðri vegna einhverjar bilunnar í kerfinu. Það á bara eftir að ná sambandi við Guðjón Bjarna og þá veit ég fullkomnlega hvað gerist.

- arig

31.05.2006

Önnur tilraun!

Eftir langan tíma og mikið sjokk fyrir almenning vegna falls "berlínamúrsins" í bloggheiminum höfum við reist hann aftur og ákveðið að byrja uppá nýtt! Ég veit ekki hvernig þetta fer og verður þessi síða hérna bíðandi eftir mér! Smellið hér!

Þegar ég skrifa þetta hér sem er eftir farandi er það eftir töluverðan umhugsunarfrest síðan ég skrifaði þetta þarna að ofanverðu og nú veit ég að ég ætla að halda áfram með þessa síðu samhliða hinni þangað til í haust allavega. Guðjón er nefninlega ekki maður til þess að blog-a af viti fyrr en þá því hann er í sveitinni.

-ARIG p.s. endilega breytið linknum á ykkar síðu. Takk fyrir mig.

29.05.2006

Saga

Ég ætla hér með að segja ykkur söguna af Loga:
1. kafli.
Logi er ósköp venjulegur strákur sem á heima á ósköp venjulegum stað í úthverfi vopnafjarðar. Hann langar að flytja í burt frá þessum stað, en þar sem hann er bara 16 getur hann það ekki. Hann er byrjaður að vinna í fiski á báti þar sem pabbi hans er skipstjóri. Pabbi hans heitir Sigurður og mamma Loga heitir Pálína. Logi er því Sigurðarson.

Einn daginn þegar hann er á sjó sér hann fugl sem er að éta úr einu saltkarinu á dekki skipsins. Hann ákveður að reka hann í burt og tekur kindabyssu úr káetunni, hleypur að fuglinum sem er bara kyrr í hægðum sínum að éta fiskinn. Hann tekur því uppá því að hóta fuglinum að efað hann myndi ekki pilla sér í burtu og hætta að éta fiskinn þá myndi hann bara skjóta hann í hausinn og henda honum í sjóinn. Fuglinn hreyfir sig ekki. Logi hugsar með sér hvort hann skilji ekki hvað hann sé að segja en hann lætur vaða aftur og segir:,,Ef þú DRULLAR þér ekki af skipinu NÚNA, þá sver ég að ég mun skjóta þig í hausinn og henda þér í sjóinn!" Fuglinn segir ekkert en lítur á hann og öskrar. Nú er farið að fjúka í Loga og hann ákveður að ná í skipstjórann og segja honum frá þessu skrítna ástandi sem hann er flæktur í.

Pabbi hans hlær og segir:,,Hvaða vitleysa Lolli minn." Þá segir Logi:,, En!" Hann náði því miður ekki að segja meira því pabbi hans grípur fram í fyrir honum og segir:,,Ekkert en Lolli minn! Farðu nú að leika þér, sérðu ekki að ég er upptekinn."
Logi fer í fýlu og hugsar með sér:,,*Afhverju skýt ég ekki bara helv**is fuglinn?" Hann stekkur því uppá dekk og einmitt þegar hann er að fara að skjóta segir fuglinn:,,Ég myndi ekki gera þetta ef ég væri þú!"
Logi:,, Afhverju?"
Fuglinn:,,Veistu ekki hver ég er?"
Logi:,,Á ég að vita það?" um leið og hann sleppir þessum orðum hleypir hann af og heilaslettur fuglsins þeytast útum allt. Þá hugsar Logi með sér að hann hafi verið einhver Einstein fuglanna því heilasletturnar voru svo margar.

Næsta dag vaknar Logi og fer uppá dekk. Þegar hann kemur uppá dekk ráðast milljón fuglar á hann og það endar með því að Logi dettur útí sjóinn og drukknar.

Jæja Hvað á þessi saga að kenna okkur? Jú maður á aldrei að dæma eftir útliti!

-arig

28.05.2006

Sunnudagsspurningin

Þetta er æsispennandi keppni og það er komið að lokaspurningum helgarinnar!

Ég hef ákveðið að taka eitt spjald af "hraðaspurningum og spyrja!

Gef stig fyrir rétt svör þangað til öll eru komin. Fyrsta rétta svarið gildir aðeins.(Þið hljótið að fatta þetta)



Hvað starfaði Carl Gustaf Jung?

Hvert er næst fjölmennasta ríki heims?

Hversu marga syni átti Gunnar á Hlíðarenda?

Í Hvaða landi var Mussolini einræðisherra?

Hvar í líkamanum myndast adrenalín?

Hvar voru fundir Reagans og Gorbachovs í Reykjavík?



Kemur örugglega ferskur pistill svona í sunnudags síðdegið á morgun!

Þangað til veriði sæl.

-arig

1 2 3 4 5 6 7 8 9 Next